Húsvættir önnuðust heildarþakskipti á fjölbýlishúsi með tveimur stigagöngum við Reyrengi í Grafarvogi. Um var að ræða umfangsmikið verkefni þar sem skipt var um alla þakklæðningu hússins ásamt rennum, niðurföllum og tilheyrandi frágangi.
Lögð voru 660 fermetrar af nýrri þakklæðningu ásamt 180 metrum af flasningum og kjöljárni, sem tryggja þéttan og veðurheldan frágang á samskeytum og köntum. Til að auka öryggi voru settar upp 95 metrar af snjógildrum sem varna því að snjór og ís falli af þakinu yfir vetrarmánuðina. Klæðning og túður eru frá Stjörnublikk.
Vatnsfrárennsli var endurnýjað að fullu með 95 metrum af þakrennum og 122 metrum af niðurföllum, af gerðinni Grövik frá Hagblikk. Að auki var skyggni yfir inngöngum að framanverðu endurnýjað, smíðað úr gagnvarinni furu og klætt að nýju.
Verkið tók um fjórar vikur frá upphafi til verkloka.
Staðreyndir um verkið
- Staðsetning
- Reyrengi, Grafarvogur, Reykjavík
- Ár
- 2026
- Húsgerð
- Fjölbýli með tveimur stigagöngum
- Verktími
- 4 vikur
- Þakklæðning
- 660 m², klæðning og túður frá Stjörnublikk
- Flasningar/kjöljárn
- 180 m
- Snjógildrur
- 95 m
- Þakrennur
- 95 m (Grövik frá Hagblikk)
- Niðurföll
- 122 m (Grövik frá Hagblikk)
- Annað
- Endurnýjað inngönguskyggni úr gagnvarinni furu
